Sæla að Kæla

Vilt þú verða sterkari og hraustari einstaklingur, sem getur tekist á við áskoranir lífsins? Kæling er ævagömul og hnitmiðuð leið til þess að kjarna huga, sál og líkama saman í eitt. Þegar við kælum líkamann losar hann endorfín út í kerfið, náttúruleg efni sem skapa gleðitilfinningu, verkjastillingu og vellíðan.

Einn af helstu kostum kælingar er áhrif hennar á bólgur í líkamanum. Þetta getur verið sérstaklega gagnlegt fyrir einstaklinga með bólgusjúkdóma eins og liðagigt, íþróttafólk eða einstaklinga sem eru að jafna sig eftir mikla líkamlega áreynslu.  Aukin ónæmisvirkni verður í kuldanum, sem örvar framleiðslu hvítra blóðkorna. Regluleg notkun ísbaða við réttar aðstæður getur hjálpað til við að styrkja ónæmiskerfið og hugsanlega dregið úr hættu á veikindum.

Frá andlegu sjónarhorni má skilja kælingu sem verkfæri til að byggja sjálfsaga og sjálfstraust. Meðan á ísbaði stendur er gott að einblína á öndun og vitund. Þegar hugurinn kyrrist  getum við haldið ró og stöðugleika í kuldanum. Mikill kuldi getur virkað sem hvati til að reyna á takmörk mannsins, bæði líkamlega og andlega. Kuldinn krefst þess að einstaklingur rækti með sér innri styrk, seiglu og ákveðni til að sigrast á vanlíðan, ótta og mótspyrnu. Kæling kennir okkur að horfast í augu við hindranir í lífinu, sem getur leitt til innri umbreytingar. Þessi aukna vitund leiðir til skýrleika og innri friðar. Þó að reynslan sjálf geti verið óþægileg um stundarsakir, geta langtímaáhrif verið minni bólgur, bætt blóðflæði og aukin gleðihormón, sem hefur snjóboltaáhrif út í lífið.

Kuldi í réttu magni við réttar aðstæður getur því:


Minnkað bólgur

Verið náttúruleg verkjastilling

Skapað sælu og vellíðan

Styrkt hugann

Styrkt ónæmiskerfið

Bætt einbeitingu, vilja og seiglu

Veitt andlega upplifun

Bætt sjálfsaga og sjálfstraust

Bætt blóðflæði og styrkt æðakerfi

Bætt öndun

Skapað hugleiðsluástand

Bætt efnaskipi líkamans

Dregið úr vöðvaeymslum


Það er mikilvægt að hafa í huga að þó að ísböð hafi marga kosti, þá getur kuldinn verið varasamur, og því er mikilvægt að fara varlega inn í hann, með handleiðslu. 

Ertu óviss hvort að kuldinn sé fyrir þig?  Hafðu endilega samband í gegnum arnor@primal.is og við skoðum hvort og hvernig kuldameðferð hentar þér. 

Hvar:
Námskeiðið fer fram í húsnæði Primal Iceland, að Faxafeni 12
Þar sem sérhönnuð aðstaða með tilliti til þessarar iðkunar hefur verið útbúin. Kaldir pottar og sauna.

Hvenær:
Helgarnámskeið 3.-4 febrúar
kl 11:15 -15:15

Verð: 24.900 kr
*allir þátttakendur fá aðgang í Mjúkt movement mán og mið 16:20 og teygjur og öndun á föstudögum 16:20

Tvennutilboð á Sæla að kæla og Vertu í andnaum í febrúar: 42.900 kr

Nánari upplýsingar í gegnum netfangið arnor@primal.is

Kennari: Arnór Sveinsson