Mýkt & meðvitund
Hefst haustið 2026
Mýkt og meðvitund er rólegt og nærandi námskeið sem sameinar mjúkar flæðandi teygjur, liðkandi hreyfingar, milda vefjalosun og leidda slökun.
Áhersla er lögð á öndun í teygjum og slökun, og eru kennslustundirnar hannaðar til að skapa innri ró, léttleika og jafnvægi í daglegu lífi.*
Tímar námskeiðsins henta iðkendum sem vilja koma sér af stað í hreyfingu eftir langan tíma, þeim sem eru að koma til baka eftir veikindi, fólki á besta aldri sem vill viðhalda liðleika og mýkt, eða þeim sem vilja njóta hreyfingar þar sem líkamsvitund, öndun og slökun eru í fyrirrúmi.
Kennarinn leiðbeinir mildar og aðgengilegar æfingar sem auðvelt er að aðlaga að eigin líkama og þörfum. Námskeiðið sameinar hreyfingu og leidda slökun á þann hátt að þátttakendur finna léttleika, aukna mýkt og innri ró – allt á öruggan og nærandi hátt.
*Tímarnir eru rólegri og mýkri en Primal Lífsstíll - teygjur & öndun og hentar þeim allra viðkvæmustu.
Hafa ber í huga að Primal Iceland er á 2 hæð í lyftulausu húsnæði og tímar fara fram á efri hæð innan Primal Iceland.
Nánari upplýsingar
Kennarar
Íris Huld & Magni Grétarsson
Námskeið hefst 10. ágúst.
2x tímar í viku - 60 mínútur í senn.
Kennt á mánudögum og miðvikudögum
kl. 10:30-11:30
Stakur mánuður: 29.900 kr. (stakur mánuður - 8x skipti)
Þriggja mánaða kort (12 vikur): 77.700 kr. (25.900 kr per mánuð)
Ósk um breytingu á skráningu þarf að berast minnst 24 tímum fyrir upphaf námskeiðsins. Kort eru ekki fryst eða framlengd.
ATH! Lokuð námskeið falla niður á rauðum dögum, tímar í boði á þeim dögum kynntir í Abler.