Endurstilling
Í Masca á Tenerife
18.-24. Apríl 2027
Endurstilling – Primal konur!
Nokkrir dagar sem breyta meiru en þú heldur – ró, næring og vellíðan sem fylgir þér heim.
Þetta retreat er hannað fyrir konur sem vilja stíga út úr amstri hversdagsins og finna jafnvægi á ný. Í fallegu og kyrrlátu umhverfi Mandala de Masca færðu rými til að hægja á, anda dýpra og hlusta á það sem líkaminn er að segja þér.
- Byggt á hugmyndafræðinni Sigrum streituna og námskeiðinu Kröftugar konur þar sem lögð er áhersla á að styðja við taugakerfið, auka meðvitund um öndun og líðan og kenna þér að vinna með líkamanum – ekki gegn honum.
Með daglegum öndunaræfingum, liðkandi hreyfingu og æfingum sem tengjast líðan þinni lærir þú að róa kerfið, hvílast, losa um spennu og byggja upp innri styrk.
Þú öðlast mikilvæga fræðslu og þekkingu sem hjálpar þér að skilja sjálfa þig betur, eykur sjálfstraust og bætir líðan í líkama og sál. Þetta er ekki bara hvíld – heldur endurstilling og verkfærakista full af tækjum og tólum sem þú tekur með þér heim.
Sjá ítarlegri lýsingu og verð hér að neðan!
Primal-þjálfararnir Íris Huld og Einar Carl munu taka á móti allt að 18 konum í einstakri dvöl í Masca á Tenerife dagana 18.–24. apríl 2027.
Ferðin er hugsuð fyrir allar áhugasamar konur sem vilja huga vel að eigin heilsu.
Verð: 290.000 kr.
Staðfestingargjald: 25% af heildarverði eða 72.500 kr.
ATH! Staðfestingargjaldið er óafturkræft!
Til að tryggja pláss fer skráning og greiðsla fram í gegnum hlekk hér að neðan. Í kjölfarið verður sendur út póstur varðandi lokagreiðslu og/eða skiptingu greiðslna fyrir brottför.
Innifalið í verði:
• Dagskrá Primal – fræðsla/iðkun 2–3x á dag (dagskrá aðlöguð á innritunar- og útritunardegi)
• Gisting í hinu fallega MANDALA DE MASCA – miðað við tvo saman í herbergi*
• Þrjár fallegar, bragðgóðar, lífrænar og vegan máltíðir á dag (mismunandi á innritunar- og útritunardegi)
• Holl millimál og ávextir yfir daginn
• Jurtate, aguas frescas og aðrir heimagerðir óáfengir drykkir
• Aðgangur að sameiginlegum svæðum, sundlaug, útisvæði o.fl.
• Þráðlaust net í Yoga Living
• Ótakmörkuð notkun á aðstöðu MANDALA DE MASCA
• Handklæði (fyrir baðherbergi og sundlaug)
• Sameiginlegar ferðir til og frá flugvelli með leigubíl
Verð er miðað við tvo einstaklinga saman í herbergi. Sum herbergjanna eru með sameiginlegu baðherbergi. Einnig er í boði eitt þriggja manna herbergi.
*Séróskir um annað fyrirkomulag – hafa samband á iris@primal.is
Ekki innifalið í verði:
• Flug til og frá Tenerife
• Tryggingar*
• Nudd – ef óskað er, bókað á staðnum
• Dagsferðir og skoðunarferðir – ef óskað er, bókað á staðnum
*ATH! Skilyrði fyrir bókun er að þátttakendur taki ferðatryggingu. Einnig er mælt með því að greiða flug með greiðslukorti til að tryggja hámarksvernd ef röskun verður á flugi.
Mikilvægt er einnig að hafa íslenskt sjúkratryggingakort meðferðis.
Hagnýtar upplýsingar:
Öll fræðsla og þjálfun á vegum Primal Iceland fer fram á íslensku.
Engin krafa er gerð um fyrri ástundun eða þekkingu á aðferðafræði Primal, einungis áhugi á að bæta eigin líðan og heilsu.
Engin krafa er gerð um sérstaka getu þar sem hægt er að aðlaga allar æfingar. MANDALA DE MASCA er í hlíð og því nokkuð mikið af stigum á svæðinu.
Þetta er ekki ferðin fyrir þig ef þú vilt versla, „djamma“ eða upplifa liflegan „strandarfílíng“.
Vertu viðbúin mikilli ró og hvíld og að koma endurnærðari heim en úr öðrum fríum.
Staðsetning: Masca á Tenerife, fallegt þorp í mið-norðvesturhluta eyjunnar, aðeins 40 mínútna akstur frá flugvellinum Reina Sofía (TFS).
MANDALA DE MASCA er áfengis- og vímuefnalaust svæði.
Mikilvægt er að láta vita af ofnæmi og/eða óþoli áður en mætt er á svæðið.
Nánari upplýsingar um hvað taka skal með í ferðalagið berast um tveimur vikum fyrir brottför.