Calisthenics

Calisthenics - styrkur sem þú berð með þér – hvert sem er!

Námskeið í boði

8x skipti - 4 vikur: 29.900 kr.
24x skipti - 12 vikur:
77.700 kr.* (hægt að skipta í 3 greiðslur 25.900 kr.)

Næsta námskeið hefst 8. apríl
mánudaga & miðvikudaga 18:40

Þjálfari námskeiðsins: Kristinn Viðar

Námskeiðinu fylgir einnig aðgangur að öllum Movement tímum Primal skv. tímatöflu.
Hægt er að sjá tímana og skrá sig í tíma í Abler appinu!


*Skilmálar eru bindandi. Ef hætta þarf við þátttöku ber að láta vita með amk 24 klst. áður en tímabil hefst. Námskeiðagjald fæst ekki endurgreitt eftir að námskeið er hafið.​​
**Lágmarksþátttaka 10x



Á Calisthenics námskeiðinu er unnið með einfaldar en krefjandi hreyfingar til að byggja upp styrk, líkamsvitund og stjórn – án lóða eða flókins búnaðar.

Áhersla er lögð á líkamsbeitingu, tækni og stigvaxandi erfiðleikastig. Hver hreyfing á sér einfaldari og flóknari útgáfu, sem gerir iðkendum kleift að upplifa raunverulegar framfarir hvort sem markmiðið er fyrsta armbeygjan, fyrsta upphýfingin eða fyrsta muscle-upið.

Námskeiðið hentar þeim sem vilja:– byggja upp sterkan og stöðugan líkama með eigin líkamsþyngd – bæta líkamsvitund, líkamsbeitingu og stjórn– læra grunn í calisthenics eða dýpka núverandi færni – styrkja stoðkerfið á sjálfbæran og náttúrulegan hátt

Ekki er gerð krafa um fyrri reynslu eða styrk.

Útkoman er aukinn styrkur, betri líkamsstjórn og meira sjálfstraust í hreyfingu – bæði innan og utan æfingasalarins.

Calisthenics er styrkur sem þú berð með þér – hvert sem er!